fim 19. janúar 2017 11:30
Magnús Már Einarsson
Rivaldo sér Coutinho fara til Barcelona
Rivaldo var valinn bestur í heimi árið 1999.
Rivaldo var valinn bestur í heimi árið 1999.
Mynd: Getty Images
Rivaldo, fyrrum leikmaður Barcelona, segist sjá fyrir sér að félagið kaupi Philippe Coutinho frá Liverpool í framtíðinni.

Hinn 24 ára gamli Coutinho hefur oft verið orðaður við Barcelona en hann er frá Brasilíu líkt og Rivaldo.

„Hann er frábær leikmaður og hann þekkir Neymar vel. Þeir eru vinir og þeir eru báðir framúrskarandi leikmenn," sagði Rivaldo í viðtali við Sky Sports.

„Ég held að þessi félagaskipti gætu átt sé stað því Barcelona fær alltaf þá bestu til sín, er það ekki? Hann er leikmaður sem skarar fram úr og ég tel að það yrði gott fyrir Barcelona ef þetta myndi gerast."

„Hann er leikmaður sem myndi klárlega hjálpa Barcelona. Auðvitað er Barcelona stórt félag en það myndi klárlega hjálpa liðinu mikið að fá leikmann eins og hann."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner