Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 19. janúar 2017 11:37
Elvar Geir Magnússon
Mourinho einn eftir á hótelinu
Aðdáandi fær bolamynd af sér við hótelið.
Aðdáandi fær bolamynd af sér við hótelið.
Mynd: Getty Images
Allir þeir leikmenn Manchester United sem bjuggu á Lowry hótelinu eru búnir að finna sér annað heimili. Jose Mourinho, stjóri United, býr þó enn á hótelinu og einnig njósnarinn Ricardo Formosinho.

Eric Bailly, Zlatan Ibrahimovic, Henrikh Mkhitaryan og Paul Pogba sem keyptir voru síðasta sumar bjuggu allir á hótelinu.

Zlatan og Bailly eru fluttir í Cheshire sveitasæluna rétt fyrir utan borgina.

Pogb flutti út af hótelinu í desember og Mkhitaryan hefur einnig komið sér fyrir á nýju heimili.

Ekki er vitað hvort Mourinho ætli að finna sér húsnæði á Manchester svæðinu en fjölskylda hans býr enn í London. Sonur hans spilar með unglingaliðum Fulham.

Manchester United hefur verið á góðu skriði að undanförnu en liðið hefur þó verið límt í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Liðið er fjórum stigum frá fjórða sætinu.
Athugasemdir
banner
banner