Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 19. janúar 2017 12:00
Magnús Már Einarsson
WBA að landa Livermore - Í viðræðum um kaup á Ighalo
Jake Livermore.
Jake Livermore.
Mynd: Getty Images
Hull hefur samþykkt tilboð frá WBA í miðjumanninn Jake Livermore en Sky Sports greinir frá. Hull hafði hafnað átta milljóna tilboði WBA á dögunum en félögin hafa nú náð saman.

Livermore, sem er 27 ára gamall, er nú sjálfur á leið í viðræður við WBA.

Tony Pulis, stjóri WBA, er á fullu að vinna í að styrkja hópinn en hann vill líka fá framherjann Odion Ighalo frá Watford.

Viðræður eru í gangi á milli félagana og einhverjar fréttir segja að samkomulag upp á 17 milljóna punda kaupverð liggi fyrir.

Hinn 27 ára gamli Ighalo skoraði 17 mörk á síðasta tímabili en á þessu tímabili hefur hann einungis skorað tvö mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner