mán 31. janúar 2005 14:35
Fer Bellamy til Celtic?
Enn halda sögurnar áfram um Craig Bellamy sóknarmann Newcastle. BBC greinir frá því að Celtic hafi boðið Newcastle lánssamning fyrir Bellamy sem neitaði tilboði um að fara til Birmingham í morgun.

Nokkur önnur lið höfðu áhuga á að fá hann að láni en Newcastle neituðu þeim öllum. Þó gæti verið möguleiki á því að liðið sé tilbúið að lána hann til Celtic þar sem þeir spila í Skotlandi og að Newcastle hafi bara ekki viljað lána hann innan Úrvalsdeildarinnar.

Eins og margoft hefur komið fram sagði Graeme Souness stjóri Newcastle að Bellamy fengi ekki að spila aftur fyrir sig. Í stað þess að hafa þennan leikmann uppi í stúku gætu Newcastle freistast til að leyfa honum að spila reglulega áður en hann ákveður hvert hann fer í sumar.

Slapp
banner
banner
banner