Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 21. janúar 2017 17:57
Kristófer Kristjánsson
Kjarnafæðismótið: Leiknir F. ekki í vandræðum með KA 3
Hilmar Freyr Bjartþórsson skoraði tvö.
Hilmar Freyr Bjartþórsson skoraði tvö.
Mynd: Raggi Óla
Leiknir F. 5 - 1 KA 3
1-0 Hilmar Freyr Bjartþórsson ('14)
2-0 Almar Daði Jónsson ('43)
3-0 Hilmar Freyr Bjartþórsson ('65)
3-1 Björn Andri Ingólfsson ('68)
4-1 Þorgeir Örn Tryggvason ('86)
5-1 Marteinn Már Sverisson ('89)

Leiknir F. átti ekki í nokkrum vandræðum með KA 3 á Kjarnafæðismótinu í dag.

Hilmar Freyr Bjartþórsson kom Leikni yfir eftir tæplega korter, áður en Almar Daði Jónsson tvöfaldaði forskotið rétt fyrir hálfleik.

Leiknir komst svo í 3-0 með öðru marki Hilmars í leiknum. Björn Andri Ingólfsson lagði stöðuna í seinni hálfleik en það dugði skammt.

Þorgeir Örn Tryggvason kom Leikni í 4-1 áður en Marteinn Már Sverrisson skoraði fimmta mark Leiknis undir lokin og þar við sat.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner