Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 24. janúar 2017 12:30
Magnús Már Einarsson
Tímabilið búið hjá Baba Rahman
Mynd: Getty Images
Baba Rahman, vinstri bakvörður Chelsea, verður frá keppni út tímabilið vegna hnémeiðsla.

Rahman sleit krossband í leik Gana og Úganda í Afríkukeppninni.

Þessi 22 ára gamli leikmaður fór í aðgerð í Þýskalandi og verður frá keppni í að minnsta kosti hálft ár.

Rahman hefur í vetur verið í láni hjá Schalke en hann var ekki í áætlunum Antonio Conte hjá Chelsea fyrir tímabilið.

Rahman spilaði 23 leiki með Chelsea á síðasta tímabili en hann kom til félagsins frá Augsburg á 21,7 milljón punda í ágúst 2015.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner