Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 17. febrúar 2017 16:45
Magnús Már Einarsson
Gummi Tóta með ný tattú: Svipuð pæling og hjá Ed Sheeran
Hluti af tattúnum sést hér á hendinni á Gumma.
Hluti af tattúnum sést hér á hendinni á Gumma.
Mynd: Norrköping
„Ætli mamma sjái ekki fyrst á Fótbolta.net að ég sé kominn með tattú. Hún varð einhverntímann að komast að þessu," sagði Guðmundur Þórarinsso og hló þegar Fótbolti.net spurði hann út í tattú sem hann er kominn með á hendina.

Guðmundur samdi í dag við IFK Norrköping í Svíþjóð en á mynd frá kynningunni sjást nokkur tattú sem hann var að fá sér á vinstri hendina.

„Ég vaknaði daginn eftir að ég var búinn að fá tattúin og skildi eiginlega ekkert hvað var búið að gera," sagði Guðmundur léttur í bragði.

„Þetta eru nokkur tákn sem þýða eitthvað fyrir mig í lífinu. Þetta er til að minna mig á ákveðin value í lífinu. Ed Sheeran tattúar góðar minningar á hendurnar á sér og þetta er svipuð pæling sem ég er að vinna með."

„Þetta gefur mér smá bad guy attitude, sem mig hefur alltaf vantað í fótboltanum. Erum við ekki öll að reyna að finna sjálf okkur í þessu lífi og hafa gaman? Þetta er bara partur af því hjá mér. Ég var búinn að pæla í þessu lengi að fá tattú sem minna mig á mín value í lífinu og hvað ég stend fyrir."

Smelltu hér til að sjá viðtal við Gumma um félagaskiptin
Athugasemdir
banner
banner