Carlo Ancelotti viðurkennir að hann hafi sýnt stuðningsmanni Hertha Berlin löngutöng er lærisveinar hans í Bayern Munchen mættu liðinu frá höfuðborg Þýskalands.
Robert Lewandowski jafnaði leikinn í 1-1 með marki á 96. mínútu og ætlaði allt upp úr að sjóða er flautað var til leiksloka.
Leikmenn Hertha umkringdu dómara leiksins eftir leik á meðan stuðningsmenn voru mjög pirraðir.
„Ég sýndi stuðningsmanni löngu töng því það var hrækt á mig," sagði Ancelotti við Bild.
Bayern er enn á toppnum í þýsku deildinni en RB Leipzig getur minnkað muninn í fimm stig með sigri á Borussia Monchengladbach á sunnudag.
Athugasemdir