Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 19. febrúar 2017 13:06
Kristófer Kristjánsson
Byrjunarlið Fulham og Tottenham: Harry Kane byrjar
Á sínum stað
Á sínum stað
Mynd: Getty Images
B-deildarlið Fulham fær Tottenham í heimsókn í enska bikarnum nú á eftir.

Tottenham hefur aðeins unnið tvo af síðustu 14 útileikjum sínum í öllum keppnum en hafa hér tækifærið til að komast í 8 liða úrslit í bikarnum.

Talið var að Tottenham yrði án Harry Kane sem meiddist lítillega í Evrópudeildinni á fimmtudaginn en hann er á sínum stað í byrjunarliðinu með fyrirliðabandið.

Ragnar Sigurðsson er ekki í leikmannahópi Fulham.

Byrjunarlið Fulham: Bettinelli, Malone, Odoi, McDonald, Kebano, Cairney, Ayité, Ream, Johansen, Aluko, Kalas.

Byrjunarlið Tottenham: Vorm, Trippier, Alderweireld, Vertonghen, Davies, Wanyama, Winks, Eriksen, Son, Dele, Kane
Athugasemdir
banner
banner