Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 19. febrúar 2017 16:20
Kristófer Kristjánsson
Welbeck ekki með á morgun - Spilaði með U23 í dag
Welbeck er ekki inni í myndinni núna
Welbeck er ekki inni í myndinni núna
Mynd: Getty Images
Eini raunhæfi möguleiki Arsenal á bikar í ár er enski bikarinn en á morgun heimsækja Arsene Wenger og félagar utandeildarlið Sutton.

Wenger ætlar væntanlega að forðast skömmina sem því myndi fylgja að tapa á morgun en hann ætlar ekki að nota krafta Danny Welbeck í verkefnið, mörgum stuðningsmönnum Arsenal til mikillar gremju.

Welbeck skoraði tvö mörk gegn Southampton í enska bikarnum í janúar en hann hefur ekki byrjað leik síðan og nú er ljóst að hann tekur ekki þátt í leiknum gegn Sutton á morgun þar sem hann var í hóp Arsenal U23 gegn Leicester U23 í varaliðsdeildinni í dag.

Welbeck var frá í níu mánuði vegna hné meiðsla og ljóst að hann á eitthvað í land áður en hann verður valinn reglulega aftur.



Athugasemdir
banner
banner