Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 19. febrúar 2017 16:00
Kristófer Kristjánsson
Sara Björk skoraði fyrir Wolfsburg
Sara Björk Gunnarsdóttir (t.v.)
Sara Björk Gunnarsdóttir (t.v.)
Mynd: Getty Images
Sara Björk Gunnarsdóttir var á skotskónnum í dag er Wolfsburg tók á móti SC Sand í þýsku A-deildinni í dag.

Sara kom liði sínu í 4-0 eftir klukkutíma leik áður en gestirnir kræktu í sárabótamark undir lokin.

Wolfsburg situr í öðru sæti deildarinnar, stigi á eftir toppliði Turbine Potsdam.

Sara Björk skrifað á dögunum undir nýjan samning við Wolfsburg sem gildir til 2019 en hún á 98 A-landsleiki fyrir Ísland.
Athugasemdir
banner
banner