Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 19. febrúar 2017 20:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Mourinho: Þeir gáfu okkur erfiðan leik
Mourinho var ánægður með sigurinn
Mourinho var ánægður með sigurinn
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Manchester United var ánægður með sigur sinna manna í enska bikarnum gegn Blackburn í kvöld.

Hann óskar einnig Blackburn til hamingju með leikinn og segir að þeir hafi gefið Man Utd erfiðan leik.

Mourinho segir að ef Blackburn spili svona í Championship deildinni, þá muni þeir eiga möguleika á að bjarga sér frá falli en Blackburn er í næst neðsta sæti deildarinnar.

„Gáfu þeir okkur góðan leik? Þeir gáfu okkur meira en góðan leik, þeir gáfu okkur erfiðan leik og þeir fá mínar hamingjuóskir. Þeir voru hugaðir og sterkir."

„Ef þeir spila á þessum gæðum í Championship deildinni, þá eiga þeir mikla möguleika á að bjarga sér frá falli. Við fengum á okkur frábært mark. Þetta var frábært mark hjá þeim,"
sagði Mourinho.

Man Utd er því komið í 8-liða úrslit keppninnar en þar bíða þeirra erfiður leikur. Útileikur gegn toppliði Chelsea.
Athugasemdir
banner
banner
banner