Danny Cowley, stjóri Lincoln City vonast eftir því að utandeildarliðið Sutton United vinni stórlið Arsenal í bikarnum en liðin eigast við á morgun.
Lincoln City varð í gær, fyrsta utandeildarliðið í 103 ár til þess að komast í 8-liða úrslit bikarkeppninnar eftir sigur á Burnley.
Lincoln mætir liðinu sem sigrar á morgun og því gæti farið svo að utandeildarliðin mætist í 8-liða úrslitum. Það vonar stjóri Lincoln allavega.
„Þetta er frábær dráttur fyrir okkur. Ég vona innilega að Sutton vinni á morgun. Það yrði frábært fyrir utandeildarfótboltann."
„Við óskum Paul Doswell, stjóra Sutton og liði hans góðu gengis. Ef það gengur ekki, þá mætum við Arsenal á Emirates vellinum, þannig þetta er frábær dráttur," sagði Cowley.
Athugasemdir