Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 20. febrúar 2017 05:55
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
England í dag - Sutton mætir Arsenal
Það verður mikil gleði þegar Sutton mætir Arsenal
Það verður mikil gleði þegar Sutton mætir Arsenal
Mynd: Getty Images
Einn leikur er í enska boltanum í kvöld en það er leikur Sutton United og Arsenal sem sýndur verður beint á Stöð 2 Sport.

Liðin mætast í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar en sigurliðið mætir utandeildarliði Lincoln City í 8-liða úrslitum.

Arsenal er líklegra til sigurs í kvöld en himinn og haf er á milli liðanna í deildarkeppninni, hvorki meira né minna en 105 sæti!

Arsenal er í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar en Sutton er í 17 sæti utandeildarinnar.

Laurent Koscielny verður væntanlega ekki með Arsenal eftir að hafa farið af velli meiddur í tapinu gegn Bayern München. Þá spilaði Danny Welbeck með U23-liðinu í gær sem er vísbending um að hann verði ekki með í kvöld.

Næsti leikur Arsenal eftir þennan leik verður ekki fyrr en 4. mars og Arsene Wenger hefur sagt að hann muni tefla fram öflugu liði.

Mánudagur 20. febrúar
19:55 Sutton United - Arsenal (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir
banner
banner
banner