Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 19. febrúar 2017 23:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Mirror: Man Utd vill framlengja við Mourinho
Mourinho að fá nýjan samning hjá Man Utd strax?
Mourinho að fá nýjan samning hjá Man Utd strax?
Mynd: Getty Images
Samkvæmt Mirror vill Manchester United framlengja samninginn við Jose Mourinho, stjóra liðsins.

Mourinho tók við Man Utd í sumar og skrifaði þá undir þriggja ára samning og vill félagið hefja viðræður um nýjan samning eftir tímabilið.

Mourinho hefur komið víða við á ferli sínum en hann hefur þjálfað Porto, Chelsea, Inter og Real Madrid.

Man Utd ætlar að bjóða Mourinho nýjan samning, hvort sem liðið nær Meistaradeildarsæti eða ekki.

Mourinho á að hafa gefið það í ljós að hann myndi skrifa undir nýjan samning við félagið.
Athugasemdir
banner