„Þetta var að mörgu leyti flottur og skemmtilegur leikur," sagði Kristófer Sigurgeirsson þjálfari Leiknis í Breiðholti eftir 2-1 sigur gegn Fylki í fyrsta leik hans manna í Lengjubikarnum sem fram fór í gærkvöldi. Bæði lið leika í Inkasso-deildinni á komandi tímabili.
„Bæði lið tóku á því. Baráttan þarf að vera til staðar í fótboltanum."
Kristófer var aðstoðarþjálfari Breiðabliks í fyrra en var í haust ráðinn aðalþjálfari Leiknis. Hvernig hafa fyrstu mánuðirnir í Breiðholtinu verið?
„Þeir hafa verið ótrúlega skemmtilegir. Þetta er mjög sérstakur klúbbur. Þetta er allt öðruvísi félag en önnur félög í Reykjavík og mér finnst það ótrúlega gaman."
Kristófer er á fullu að móta Leiknisliðið fyrir komandi tímabil. Hversu marga þarf hann í viðbót til að bæta við hópinn?
„Ég er kominn með fínasta byrjunarlið og það sést alveg. Við þurfum samt fleiri kosti, sérstaklega varnarlega, og það verður bara skoðað."
Sextán ára leikmaður Leiknis, Sævar Atli Magnússon, skoraði sigurmarkið í leiknum í gær.
„Þetta er svakalega spennandi strákur og hann er með markanef, eitthvað sem margir hafa ekki. Ef hann fær sénsa er hann mjög líklegur til að skora og hann skoraði klassamark í dag."
Kristófer segir að Inkasso-deildin sé mjög jöfn eins og staðan sé í dag og Leiknir sé eitt af þeim félögum sem vilji fara upp. Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir