Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
   mán 20. febrúar 2017 07:30
Elvar Geir Magnússon
Helgi Sig: Verðum að hafa hausinn í lagi
Helgi Sigurðsson er þjálfari Fylkis.
Helgi Sigurðsson er þjálfari Fylkis.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkismenn setja stefnuna beint upp aftur eftir fall úr Pepsi-deildinni í fyrra. Helgi Sigurðsson er nýr þjálfari Árbæinga en hann og hans menn þurftu að sætta sig við tap í sínum fyrsta leik í Lengjubikarnum þegar þeir biðu lægri hlut fyrir Leikni 2-1 í gær.

„Þetta var jafn leikur en Leiknir vann á meiri vilja. Út á vellinum var þetta jöfn barátta og bæði lið fengu sín færi. Það hefur verið okkar akkilesarhæll í vetur að ná ekki að klára færin. Ef við klárum ekki færin er okkur refsað á of auðveldan hátt," segir Helgi.

„Félagið stefnir upp og við stefnum allir þangað. Við vitum samt að það verður erfitt. Það er mikil vinna framundan. Maður hefur sjálfur verið að spila í 1. deildinni og veit að þetta er erfið deild. Þetta er oft á tíðum spurning um hausinn og við verðum að hafa hann í lagi. Þá verðum við að setja okkur í meiri gír."

Helgi segir að hann sé ekki að hugsa neitt um að styrkja hópinn.

„Þetta er hópurinn sem fer inn í mótið og þetta er hópurinn sem mun standa saman í þessu. Ég er mjög sáttur við hópinn en þó er ýmislegt sem maður þarf að laga."

Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan en þar var Helgi meðal annars spurður út í Bjarna Þórð Halldórsson markvörð sem ekkert hefur verið með Fylki á undirbúningstímabilinu. Helgi reiknar ekki með honum í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner