Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 20. febrúar 2017 06:00
Kristófer Kristjánsson
Neuer pirraður út í markmann Hertha Berlin
Manuel Neuer
Manuel Neuer
Mynd: Getty Images
Manuel Neuer, markmaður Bayern Munchen vandar ekki kollega sínum hjá Hertha Berlin, Rune Jarstein kveðurnar. Norðmaðurinn var eðilega mjög pirraður er Robert Lewandowski jafnaði í 1-1 á lokasekúndunum í leik liðanna um helgina.

Jarstein sparkaði boltanum í kjölfarið af miklu afli frá markinu og fór boltinn beint í Xabi Alonso, leikmann Bayern Munchen. Í kjölfarið sauð upp úr og var hiti í mönnum.

„Það er ekki rétt að sparka boltanum viljandi í leikmann, sama hversu pirraður þú ert. Það var uppselt á leikinn og mikið af fólki að fylgjast með í sjónvarpi og þetta má ekki," sagði Neuer.

Carlo Ancelotti, stjóri Bayern Munchen er einn þeirra sem lét hitann fara með sér og sýndi hann stuðningsmönnum Hertha Berlin miðjufingurinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner