Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, hefur samþykkt að leika í dramaþáttum sem fjalla um sýrlenska flóttafjölskyldu. Angelina Jolie leikur einnig í þáttunum sem bera heitið "Hayat Koprusu".
Leikstjórinn Eyup Dirlik staðfestir í viðtali að Ronaldo og Jolie komi við sögu en ekki er gefið upp um það hversu stór þeirra hlutverk verða.
Þættirnir fjalla um flóttamannavandamálið og það sem sýrlenska fjölskyldan þarf að ganga í gegnum. Tökur munu fara fram í Tyrklandi.
Jolie hefur verið mjög áberandi í baráttu fyrir flóttafólk. Ronaldo einnig hefur sýnt ungum flóttabörnum stuðning, meðal annars með fjárhagsaðstoð. Þá hefur hann sagt að hann hafi áhuga á leiklist þó tíminn fyrir það væri nánast enginn vegna æfinga og leikja með Real Madrid og portúgalska landsliðið.
A message of hope to the children affected by the conflict in Syria. @SavetheChildren pic.twitter.com/Zsdvu2nuXd
— Cristiano Ronaldo (@Cristiano) December 23, 2016
Athugasemdir