þri 08. febrúar 2005 07:07
Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik ætlar að fá erlenda leikmenn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik ætlar að styrkja lið sitt með nokkrum erlendum leikmönnum fyrir átökin í deildinni í sumar en þetta sagði Bjarni Jóhannsson þjálfari félagsins við Fótbolta.net í gærkvöld á blaðamannafundi sem félagið hélt. Á fundinum var einnig tilkynnt um sex yngril leikmenn liðsins sem skrifuðu undir nýja samninga við félagið.

Þá var kynntur nýr styrktaraðili á æfingabúningum félagsins en það er fyrirtækið Tengi úr Kópavoginum sem mun hafa auglýsingum á æfingabúningum félagsins á næstu leiktíð.

Breiðablik hefur fengið til sín þá Hjörvar Hafliðason og Hans Fróða Hansen fyrir átökin og við spurðum Bjarna hvort hann væri kominnn með endanlegan hóp:

,,Nei,nei, Þorrinn er ekki búinn enn og við erum að styrkja umgjörðina í kringum þetta núna og það verða gríðarlegar breytingar á þessum leikmannahópi. Þetta er einn liðurin í að bæta umgjörðina og fleiri hlutir verða tilkynntir núna í vikunni. Núna er orðið nokkuð ljóst hvaða leikmenn verða áfram og hverjir ekki en það er heldur ekkert launungarmál að við ætlum að styrkja hópinn ennfrekar fyrir sumarið.
Ertu að leita þér að leikmönnum héðan af Íslandi?
,,Nei sú leit hefur ekki borið mikinn árangur en ég á von á því að það verði gert út fyrir landsteinana. Tíminn fram að páskum fer í að skoða þetta og ef okkur tekst að koma okkur í góð sambönd erlendis þá hef ég hug á að ná í leikmenn sem geta komið með okkur í æfingabúðir til Spánar um páskana."

Blikar fengu Pétur Óskar Sigurðsson að láni frá FH á síðustu leiktíð og reyndist hann happafengur og skoraði 8 mörk fyrir félagið. Pétur hefur staðið sig vel í Reykjavíkurmótinu með FH og skorað 3 mörk í fjórum leikjum. Við spurðum Bjarna hvort hann ætti von á að fá Pétur í sumar.

,,Ég á nú ekki von á því. Hann virðist vera að ná sér á strik hjá FH og skoraði átta mörk hérna fyrir okkur í fyrra. Ég á nú ekki von á að hann komi til baka. Við erum kannski að leita að öðruvísi leikmönnum líka."

Í hvaða stöðum ætlarðu að styrkja liðið?
Ég ætla fyrst og fremst að styrkja hverja línu. Fá varnarmann, miðjumann og sóknarmann. Við ætlum að reyna að þétta hópinn betur fyrir vorið, það er engin launung.

Á svo að fara beina leið upp?
Já, við komumst úr sjöunda sæti í fjórða og með sama hnykk næsta ár þá lítur þetta ágætlega út.

Á blaðamannafundinum voru leikmönnum liðsins afhentir æfingabúningar með nýja styrktaraðilanum sem þeir munu nota á æfingum svo allir séu eins á æfingum. Heldur nýstárleg aðferð var notuð í að úthluta númerum til leikmanna en öll númer frá 1-40 voru sett í pott og menn fengu að draga sér númer. En eru þau númer sem menn drógu endanleg?
,,Nei, nei, það er þannig að í fyrstu deildinni eru engin föst númer. Þetta er bara innan hópsins og svo koma hjátrúarfyllstu mennirnr hér á eftir og væla út númerin sín sem fóru ekki úr pottinum. Allir verða að hafa sín númer, það fylgir hjátrú þeim hjá mörgum. Má ekki vera oddatala, og það má ekki vera nían, og það má ekki vera fimman hjá sumum."


Þeir leikmenn sem skrifuðu undir nýja samninga við félagið í gær voru Ágúst Þór Ágústsson sem er tvítugur og spilaði 13 leiki í fyrra, Guðmann Þórisson sem er 18 ára gamall og á að baki tvo leiki fyrir U-17 ára landslið Íslands, Gunnar Örn Jónsson sem spilaði 15 leiki í fyrrasumar og á að baki leiki með U-17 og U-19 ára landsliðum Íslands, Kári Ársælsson sem einnig er 19 ára og lék með Þrótti síðasta sumar og á að baki landsleiki fyrir U-17 og U-19, Ragnar Heimir Gunnarsson, 22 ára, sem spilaði fimm leiki síðastliðið sumar og að lokum Steinþór Freyr Þorsteinsson sem er reyndastur þessara leikmanna og hefur spilað 35 leiki fyrir Breiðablik og 13 leiki fyrir unglingalandsliðin.
Slapp
banner
banner