Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 21. febrúar 2017 06:00
Stefnir Stefánsson
Lovenkrands: Frank de Boer væri fullkominn fyrir Rangers
Frank de Boer
Frank de Boer
Mynd: Getty Images
Peter Lovenkrands fyrrum liðsfélagi Frank de Boer hjá Rangers í Skotlandi segir hann fullkominn kandídat í að taka við stjórnartaumunum á Ibrox. Hann telur þó að það gæti verið að de Boer myndi ekki vilja starfið.

Rangers eru í þriðja sæti Skosku úrvalsdeildarinnar, sex stigum á eftir Aberdeen í öðru sætinu eftir tap gegn Dundee undir stjórn bráðabirðgastjórans Graeme Murty.

Mark Warburton var rekinn frá félaginu fyrr í mánuðnum og eru Rangers því í leit að nýjum knattspyrnustjóra. Og hefur Frank de Boer hefur verið nefndur til sögunnar en hann er atvinnulaus sem stendur en hann þjálfaði síðast Inter á Ítalíu.

„Ég tel að hann sé mjög góður kandídat til að taka við," sagði Lovenkrands í samtali við Sky fréttastofuna.

Hann þekkir félagið inn og út og bróðir hans líka. Ég spilaði með þeim báðum og hann hefur frábæran mann að geyma,"

Ég veit ekki hvað gerðist hjá honum með Inter, hann tók við á miðju tímabili og náði ekki að móta liðið eins og hann hefði viljað, Það gæti haft eitthvað að segja með ef að hann vill ekki koma til Rangers á miðju tímabili því hann hefur brennt sig á því áður," Bætti Lovenkrands við.
Athugasemdir
banner
banner
banner