Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. febrúar 2017 14:00
Magnús Már Einarsson
Enginn af sérfræðingum Sky spáir Swansea falli
Gylfi hefur dregið Swansea upp úr fallsæti.
Gylfi hefur dregið Swansea upp úr fallsæti.
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea hafa unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni.

Um leið hefur liðið klifrað upp úr fallsæti og í 15. sæti en Swansea er núna fjórum stigum frá falli.

Fyrir nokkrum vikum spáðu flestir Swansea falli en sérfræðingar Sky eru nú allir á því að liðið haldi sæti sínu.

Hér að neðan má sjá hvaða liðum sérfræðingarnir spá falli þegar þrettán umferðir eru eftir. Þrír af þeim spá Leicester falli en hér að neðan má sjá umræðu úr sjónvarpsþætti Fótbolta.net um Englandsmeisarana.

Hvaða lið falla?
Paul Merson: Sunderland, Hull og Leicester
Charlie Nicholas: Hull, Bournemouth og Leicester
Phil Thompson: Sunderland, Crystal Palace og Hull
Matt Le Tissier: Sunderland, Crystal Palace og Leicester
Sjónvarpið: Er Leicester að fara að falla?
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner