Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 21. febrúar 2017 20:47
Þorsteinn Haukur Harðarson
Frimpong orðinn samningslaus - Líklega á leið til Svíþjóðar
Mynd: Barnsley
Knattspyrnumaðurinn Emmanuel Frimpong er farinn frá rússneska liðinu Arsenal Tula eftir einungis þrjá leiki með félaginu.

Frimpong, sem er 25 ára gamall, þótti áður mikið efni en hann var hjá Arsenal á Englandi til ársins 2014.

Þaðan lá leiðin til Wolves, Charlton, Fulham og Barnsley áður en ensk lið gáfust upp á honum og hann fór til Ufa í Rússlandi.

Þar spilaði hann í tvö ár áður en hann fór til Arsenal Tula í ágúst. Þar náði hann aðeins að spila þrjá leiki.

Fréttir herma að hann hafi þegar samþykkt samning hjá sænska liðinu Eskilstuna.
Athugasemdir
banner