Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. febrúar 2017 22:37
Þorsteinn Haukur Harðarson
Guardiola: Úrslitin hefðu getað verið betri
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, þjálfari Manchester City, var nokkuð ánægður með 5-3 sigurinn magnaða gegn Monaco í kvöld.

„Það var margt sem gerðist í þessum leik en við vorum heppnir á réttum augnablikum. Við vorum stöðugir andlega og liðið spilaði mjög vel. Þessi leikur mun kenna okkur mikið," sagði Guardiola eftir leikinn.

„Monaco er með meiri sögu í þessari keppni en við og maður þarf svona reynslu til að læra og bæta sig. Það getur enn allt gerst í þessu einvígi svo við þurfum að vera einbeittir."

„Úrslitin í kvöld voru í lagi. Þau hefðu getað verið betri en líka verri. Svona er þetta bara."
Athugasemdir
banner
banner
banner