Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 22. febrúar 2017 10:00
Magnús Már Einarsson
Sky: Rooney ætlar ekki til Kína
Ætlar að klára tímabilið með United.
Ætlar að klára tímabilið með United.
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney, fyrirliði Manchester United, er með tilboð frá Kína en félagaskiptaglugginn þar lokar á þriðjudaginn.

Kínversku meistararnir Guangzhou Evergrande vilja fá Rooney í sínar raðir sem og Beijing Guoan en launatölurnar sem félögin eru að bjóða eru rosalegar.

Rooney hefur ekki átt fast sæti í liði Manchester United á þessu tímabili en hann á eitt og hálft ár eftir af samningi sínum.

Sky Sports segir hins vegar að hinn 31 árs gamli Rooney ætli ekki að fara til Kína áður en glugginn lokar á þriðjudag.

Rooney ætlar að klára tímabilið með Manchester United en framtíð hans í sumar er í óvissu.
Athugasemdir
banner
banner