Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 22. febrúar 2017 10:30
Magnús Már Einarsson
Myndband: Elokobi skoraði glæsilegt sigurmark
Mynd: Getty Images
George Elokobi hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mörgum íslenskum fótboltaaðdáendum.

Þessi nautsterki varnarmaður var með sinn eigin dagskrárlið í Messunni á Stöð 2 Sport þegar hann lék með Wolves í ensku úrvalsdeildinni. Fótbolti.net tók einnig áhugavert viðtal við Elokobi árið 2012

Elokobi spilar í dag með Colchester í ensku D-deildinni og í gær skoraði hann eina markið í 1-0 sigri á Wycombe Wanderers. Markið skoraði hann með glæsilegu langskoti.

Hinn þrítugi Elokobi átti góðan leik en hann bjargaði einnig á línu á ævintýralegan hátt í leiknum.

Elokobi var sáttur með markið sitt eins og sjá má á Twitter færslu hans hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner