Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 23. febrúar 2017 07:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
U17 kvenna tapaði gegn Skotum
U17 ára lið kvenna í fyrra
U17 ára lið kvenna í fyrra
Mynd: KSÍ
U17 ára landslið kvenna spilaði í gær gegn Skotlandi á æfingamóti sem fram fer í Skotlandi.

Skotar leiddu 1-0 eftir fyrri hálfleik og bættu heimastúlkur svo við tveimur mörkum í seinni hálfleik og sigruðu því 3-0.

Íslensku stelpurnar fengu nokkur góð færi í leiknum en inn vildi boltinn ekki.

Þetta var annar leikur Íslands á mótinu en það tapaði fyrir Tékkum á mánudaginn.

Þriðji og seinasti leikur Íslands verður gegn Austurríki á föstudaginn.
Athugasemdir
banner