Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 23. febrúar 2017 07:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Snæfell leitar að leikmönnum
Snæfell leitar að leikmönnum
Snæfell leitar að leikmönnum
Mynd: Úr einkasafni
4. deildarlið Snæfells leitar að mannskap fyrir komandi átök í sumar.

Snæfell tekur þátt í Lengjubikarnum, Borgunarbikarnum og Íslandsmótinu í sumar en æfingar eru á fullu bæði í Stykkishólmi og í Reykjavík.

Snæfell leitar að mönnum sem að eru tilbúnir að leggja sitt allt í verkefnið með okkur að byggja upp sterkara og betra lið Snæfells komandi leiktíð og vonandi fleiri leiktíðir. Erum við að leita að leikmönnum í allar stöður og eru menn velkomnir á æfingar hjá okkur hvenær sem er.

Liðið vantar einna helst markmann sem getur spilað leikina í Reykjavík sem og að geta mætt í leiki í Stykkishólmi og verið í hóp.

Til að fá frekari upplýsingar má hafa samband við Pál Margeir Sveinsson, formann í tölvupóstfangið [email protected] eða Davíð Guðmundsson, framkvæmdarstjóra í töluvpóstfangið [email protected]
Athugasemdir
banner
banner