Það er alltaf stuð í þýska boltanum og þessi helgi er ekkert frábrugðin. Það fer fram heil umferð og fáum við að sjá tvo leiki í beinni útsendingu.
Það er komið að umferð númer 22, en hún hefst í kvöld kl. 19:30 með leik Wolfsburg og Werder Bremen. Bæði lið hafa verið í veseni, en Aron Jóhannsson og félagar í Bremen eru í 16. sætinu með aðeins 19 stig. Leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 4.
Á morgun eru sex leikir á dagskrá og þar ber hæst leikur toppliðs Bayern og Hamburger. RB Leipzig, sem veitir Bayern mesta samkeppni, á heimaleik gegn Köln og þá heimsækir Borussia Dortmund lið Freiburg.
Það eru svo tveir leikir á sunnudaginn. Ingolfstadt fær Borussia Mönchengladbach í heimsókn kl. 14:30 og þegar þeim leik er lokið mætast Schalke 04 og Hoffenheim.

Föstudagurinn 24. febrúar
19:30 Wolfsburg - Werder Bremen (Stöð 2 Sport 4)
Laugardagurinn 25. febrúar
14:30 Bayern München - Hamburger SV (Stöð 2 Sport 2)
14:30 Bayer Leverkusen - Mainz 05
14:30 Darmstadt 98 - Augsburg
14:30 Freiburg - Borussia Dortmund
14:30 RB Leipzig - Köln
17:30 Hertha Berlin - Eintracht Frankfurt
Sunnudagurinn 26. febrúar
14:30 Ingolfstadt - Borussia Mönchengladbach
16:30 Schalke 04 - Hoffenheim
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir