Heimild: Mirror
Eric Cantona segist ekki sjá eftir hinu fræga kung-fu sparki sínu.
Cantona, sem er goðsögn hjá Manchester United, fékk níu mánaða bann fyrir að sparka í stuðningsmann Crystal Palace árið 1995.
Cantona, sem er goðsögn hjá Manchester United, fékk níu mánaða bann fyrir að sparka í stuðningsmann Crystal Palace árið 1995.
Cantona brást hinn versti við þegar hann fékk að líta rauða spjaldið og tók það út á stuðningsmanni Palace.
„Ég hef sagt það áður að ég hefði átt sparka fastar í hann, en kannski mun ég segja eitthvað annað á morgun," sagði Cantona á spurningakvöldi með aðdéndum.
„Ég get ekki séð eftir þessu. Þetta var frábær tilfinning. Ég lærði af þessu - og ég held að hann (stuðningsmaðurinn) hafi líka gert það."
Hér að neðan má sjá myndband af því þegar Cantona sparkaði í stuðningsmanninnn.
Athugasemdir