Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 24. febrúar 2017 09:28
Magnús Már Einarsson
Mourinho sendi Ranieri skilaboð á Instagram
Mynd: Getty Images
„Þetta er nýi fótboltinn," sagði Jose Mourinho, stjóri Manchester United í færslu á Instagram þar sem hann tjáir sig um brottrekstur Claudio Ranieri.

Ranieri var rekinn frá Leicester í gær, níu mánuðum eftir að hann gerði liðið óvænt að Englandsmeisturum.

Mourinho birti mynd af sér og Ranieri á Instagram þar sem hann sagði Ítalanum að halda áfram að brosa.

„Englandsmeistari og þjálfari ársins hjá FIFA. Rekinn. Þetta er nýi fóboltinn. Haltu áfram að brosa vinur. Enginn getur eytt sögunni sem þú skrifaðir," sagði Mourinho á Instagram.

Hér að neðan má sjá færsluna.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner