Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 24. febrúar 2017 14:15
Magnús Már Einarsson
Ashley Young gæti ennþá farið til Kína
Til Kína?
Til Kína?
Mynd: Getty Images
Ashley Young, kantmaður Manchester United, er á óskalista Shandong Luneng í Kína.

Félagaskiptaglugginn í Kína lokar á þriðjudaginn og Shandong gæti reynt að krækja í Young á næstu dögum með því að bjóða tíu milljónir punda í hann.

Young hefur einungis byrjað sjö leiki hjá United síðan Jose Mourinho tók við liðinu síðastliðið sumar.

Young hefur þó byrjað tvo leiki að undanförnu í bakverðinum og eftir leikinn gegn Saint Etienne á miðvikudag sagðist hann ekki ætla að fara frá United á ænstunni.

Í gær útilokaði Wayne Rooney að fara frá Manchester United til Kína en hann ætlar að klára tímabilið með Manchester United.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner