Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður á sínum stað á X-inu FM 97,7 í dag milli 12 og 14 eins og venjan er á laugardögum. Tómas Þór Þórðarson er í fríi þessa helgina en Magnús Már Einarsson og Benedikt Bóas Hinriksson verða með Elvari Geir Magnússyni.
Víða verður komið við í þættinum í dag. Gestur er markagoðsögnin Tryggvi Guðmundsson en Elvar og Magnús ætla að ræða við hann um undirbúningstímabilið á Íslandi hingað til.
Rætt verður um enska boltann þar sem brottrekstur Claudio Ranieri mun bera á góma. Svo verður að sjálfsögðu hitað upp fyrir úrslitaleik enska deildabikarins þar sem Manchester United og Southampton leika á morgun, sunnudag. Runólfur Trausti Þórhallsson á raududjoflarnir.is verður á línunni.
Þá verður púlsinn tekinn á stöðu mála hjá Víkingi Ólafsvík og rætt við Jónas Gest Jónasson formann Ólsara. Það hefur lítið heyrst úr Ólafsvíkinni i vetur.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni eru Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson. Hægt er að finna þá á Twitter undir @elvargeir og @maggimar.
Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.
Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna
Athugasemdir