lau 25. febrúar 2017 23:00
Magnús Már Einarsson
Gylfi stoðsendingahæstur í úrvalsdeildinni
Magnað tímabil.
Magnað tímabil.
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson lagði upp sitt níunda mark í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu þegar hann átti aukaspyrnu sem Fernando Llorente skallaði í netið gegn Chelsea í dag.

Gylfi er þar með stoðsendingahæstur í úrvalsdeildinni ásamt Kevin de Bruyne leikmanni Manchester City.

Auk stoðsendinganna þá hefur Gylfi skorað átta mörk með Swanesa á tímabilinu en hann hefur átt þátt í 17 af 32 mörkum liðsins.

Flestar stoðsendingar í úrvalsdeildinni
Gylfi Þór Sigurðsson (Swansea) 9
Kevin De Bruyne (Man City) 9
Christian Eriksen (Tottenham) 8
Matt Phillips (West Bromwich Albion) 8
Alexis Sánchez (Arsenal) 8
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner