Fylgst með í úrslitaþjónustu á forsíðu
Klukkan 16:30 er flautað til úrslitaleiks Manchester United og Southampton í deildabikarnum.
Leikurinn fer fram á Wembley leikvanginum í Lundúnum en búið er að opinbera byrjunarliðin. Wayne Rooney er meðal varamanna hjá Manchester United.
Athygli vekur að Jesse Lingard fær tækifæri í byrjunarliðinu en hann skoraði sigurmarkið í úrslitaleik FA-bikarsins á síðasta tímabili.

Juan Mata er einnig í byrjunarliðinu en hann ferðaðist ekki með hópnum í leikinn. Hann var viðstaddur jarðarför hjá afa sínum á Spáni en tók einkaþotu til London.
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, vann deildabikarinn þrívegis sem stjóri Chelsea.
Byrjunarlið Manchester United: De Gea, Valencia, Bailly, Smailling, Rojo, Herrera, Pogba, Lingard, Mata, Martial, Ibrahimovic.
Byrjunarlið Southampton: Forster, Cedric, Yoshida, Stephens, Bertrand, Romeu, Davis, Ward-Prowse, Tadic, Redmond, Gabbiadini.
Stemningin fyrir utan Wembley að aukast með hverri mínútu. Úrslitaleikur Man Utd og Southampton 16:30#fotboltinet pic.twitter.com/RSlh7lJ2wS
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) February 26, 2017
Hvernig fer úrslitaleikur Deildabikarsins? #fotboltinet
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) February 25, 2017
Athugasemdir