Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, hrósaði Harry Kane í hástert eftir 4-0 sigurinn á Stoke í dag.
Kane skoraði þrennu í leiknum en öll mörkin komu á fyrsu 37 mínútunum.
„Hann er að spila mjög vel. Hann er einn af bestu framherjum í heimi. Hann verðskuldar þetta því hann er frábær atvinnumaður," sagði Pochettino.

Dele Alli skoraði fjórða mark Tottenham og Pochettino hrósaði honum einnig. Alli kom sterkur til baka í dag eftir rauða spjaldið gegn Gent á fimmtudaginn.
„Dele er þroskaður og frábær strákur. Ég er mjög ánægður fyrir hans hönd. Hann hefur átt erfiða daga en þetta var flott svar hjá honum. Hann var stórskostlegur inni á vellinum."
Athugasemdir