Nú er í gangi úrslitaleikur deildabikarsins á Wembley þar sem Manchester United og Southampton eigast við.
Manchester United komst yfir með marki frá Zlatan Ibrahimovic beint úr aukaspyrnu á 19. mínútu.
Manchester United komst yfir með marki frá Zlatan Ibrahimovic beint úr aukaspyrnu á 19. mínútu.
United var stálheppið að lenda ekki undir áður en Zlatan skoraði. Manolo Gabbiadini kom boltanum í netið en markið var ranglega dæmt af en aðstoðardómarinn taldi að um rangstöðu hefði verið að ræða.
Á myndinni hér að neðan má sjá að Gabbiadini var ekki rangstæður þegar sendingin kom. Samherji hans var fyrir innan en hafði ekki áhrif á leikinn.
Staðan í leiknum er 1-0 fyrir Manchester United þegar um 24 mínútur eru liðnar.
Athugasemdir