Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 26. febrúar 2017 18:56
Magnús Már Einarsson
Zlatan: Ég kom hingað, það er sérstakt!
Zlatan fagnar marki.
Zlatan fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic skoraði tvívegis í 3-2 sigri Manchester United á Southampton í úrslitum enska deildabikarsins í dag en hann skoraði sigurmarkið þegar nokkrar mínútur voru eftir.

Eftir leikinn fór Zlatan í magnað viðtal hjá Sky Sports. Þar fekk Zlatan spurninguna: Er eitthvað sérstakt í uppsiglinu hjá Manchester United? „Ég kom hingað, það er sérstakt," svaraði Zlatan.

„Þetta var vel gert hjá öllu liðinu. Ég kom hingað til að vinna og ég er að vinna. Ég verð ánægðari því meira sem ég næ að vinna."

„Þú kannt betur að meta þetta þegar þú verður eldri. Ég hef unnið titla alls staðar þar sem ég hef komið. Ég held að þetta sé titill númer 32 hjá mér."

„Ég spáði þessu. Margir héldu að ég gæti þetta ekki. Ég held þessu áfram. Ég nýt þess að spila á Englandi."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner