sun 26. febrúar 2017 19:01
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Pogba: Þess vegna keyptum við Zlatan
Pogba lyftir deildabikarnum
Pogba lyftir deildabikarnum
Mynd: Getty Images
„Þetta er mjög mikilvægt fyrir alla. Ég er mjög ánægður," sagði Paul Pogba eftir að Manchester United tryggði sér deildabikarinn eftir 3-2 sigur á Southampton í dag.

Leikurinn var frábær fyrir áhorfendur en það var Zlatan sem reyndist hetja Manchester United í dag.

Með sigrinum tókst Mourinho að verða fyrsti þjálfarinn hjá Man Utd til þess að vinna titil á sínu fyrsta tímabili.

Þetta var fyrsti titill Pogba með Man Utd og tók hann að sjálfsögðu „Dab" með bikarinn.

„Þess vegna keyptum við Zlatan. Til þess að sigra mikilvægu leikina", sagði Pogba um liðsfélaga sinn, og hetju leiksins, Zlatan Ibrahimovic
Athugasemdir
banner
banner
banner