Gareth Bale var tekinn af velli til vonar og vara samkvæmt Zinedine Zidane, þjálfara Real Madrid, í mögnuðum sigurleik liðsins gegn Villarreal.
Bale var að spila sinn fyrsta leik síðan í nóvember vegna meiðsla og var það mark hans sem hóf endurkomu Real Madrid eftir að heimamenn í Villarreal höfðu komist í 2-0. Real Madrid vann að lokum leikinn, 3-2, en Gareth Bale fór af velli á 89. mínútu.
„Hann fékk smá högg, þetta er smávægilegt," sagði Zidane við blaðamenn eftir leikinn.
Gareth Bale gekk til liðs við Real Madrid sumarið 2013 og hefur hann skorað 67 mörk í 142 leikjum fyrir spænska stórveldið.
Athugasemdir