Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 27. febrúar 2017 12:25
Elvar Geir Magnússon
Henderson ekki með í kvöld - Gæti misst af Arsenal
Henderson ekki með í kvöld.
Henderson ekki með í kvöld.
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson missir af leik Liverpool gegn Leicester í kvöld og þá gæti hann einnig verið fjarverandi á laugardag þegar Arsenal heimsækir Anfield.

Þessi fyrirliði Liverpool er að glíma við meiðsli á fæti og ferðaðist ekki með í leikinn gegn Leicester. Þetta er fyrsti leikur Englandsmeistara Leicester eftir að Claudio Ranieri var rekinn.

Henderson meiddist á æfingu en ekki er búist við því að hann verði lengi frá keppni.

Emre Can eða Lucas Leiva kemur í stað Henderson gegn Leicester. Lucas gæti reyndar leikið sem miðvörður þar sem Dejan Lovren er að jafna sig á hnémeiðslum.

Óvíst er með þátttöku Daniel Sturridge í leiknum en hann var veikur í síðustu viku.

Hljóðvarpsþátturinn Innkastið verður tekið upp eftir leik en þar verður fjallað ítarlega um leikinn, Liverpool, Ranieri, sigur Manchester United í deildabikarnum og fleira.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner