mán 27. febrúar 2017 23:10
Stefnir Stefánsson
Drinkwater: Þetta kallast að svara fyrir sig
Danny Drinkwater
Danny Drinkwater
Mynd: Getty Images
Danny Drinkwater miðjumaður Leicester skoraði mark af dýrari gerðinni þegar lið hans Leicester City, lagði Liverpool 3-1 í leik eina kvöldins í ensku úrvalsdeildinni.

„Við þurfum á þessari frammistöðu að halda, við fórum aftur á teikniborðið og gerðum hlutina einfalt. Það eru oft einföldu hlutirnir sem að þú lærir sem ungur leikmaður sem að skila þér mestum árangri." sagði Drinkwater kátur.

„Maður á alltaf að búast við gagnrýni þegar illa gengur og þetta er eina leiðin til að svara henni. Það er erftitt að reyna að benda á hvers vegna við höfum ekki verið að spila jafn vel í hinum leikjunum eins og við gerðum í kvöld en við eigum enþá tækifæri á að rétta tímabil okkar við." sagði Drinkwater sem lítur björtum augum á framhaldið hjá Leicester.

„Manni líður vel eftir svona frammistöðu og nú er það bara okkar leikmannana að nýta þennan meðbyr og byggja ofan á hann. Þetta kallast að svara fyrir sig."

„Við þurftum að endurskoða hlutina, reyna að þvinga þá í mistök og pressa hátt. Það gekk allt upp í dag," sagði Drinkwater.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner