Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 28. febrúar 2017 11:20
Magnús Már Einarsson
Byrjaði á Twitter til að útiloka að taka við Leicester
Mynd: Getty Images
Sergio Conceicao, þjálfari franska félagsins Nantes, hefur útilokað að taka við Leicester eftir að Claudio Ranieri var rekinn.

Conceicao er Portúgali en hann spilaði á sínum tíma á kantinum hjá Lazio, Parma og Porto. Hann tók við Nantes í fyrra en Kolbeinn Sigþórsson er á mála hjá félaginu.

Conceicao líkar vel hjá Nantes og hann ákvað að búa til Twitter aðgang til þess eins að blása á orðróm þess efnis að hann sé á leið til Leicester. Conceicao notaði fyrstu færslu sína á Twitter til að blása á þann orðróm.

Craig Shakespeare stýrði Leicester til sigurs gegn Leicester í gær og líklegast þykir að hann fái starfið út tímabilið.

Martin O’Neill, Roberto Mancini, Nigel Pearson, Alan Pardew og Guus Hiddink eru á meðal þeirra sem hafa verið orðaðir við félagið.
Athugasemdir
banner
banner