Albert Guðmundsson er leikmaður umferðarinnar í hollensku B-deildinni að mati vefsíðunnar Vl.nl.
Albert skoraði þrennu í 4-1 sigri varaliðs PSV á RKC Waalwijk síðastliðinn föstudag.
Frammistaðan gerir hann að leikmanni umferðarinnar en Albert er einnig á miðjunni í liði umferðarinnar.
Í síðustu viku skoraði Albert bæði mörk varaliðs PSV í sigri á NAC Breda.
Frammistaða Alberts er án efa farin að vekja athygli hjá Phillip Cocu, þjálfara PSV, og spennandi verður að sjá hvort þessi 19 ára gamli leikmaður fái tækifæri með aðalliðinu áður en tímabilið er úti.
#SPORT #PSV Het verhaal van: Jong PSV - RKC Waalwijk: Hattrick voor Albert Gudmundsson op… https://t.co/VMPwRO3FFi
— HQ OPENN VIRALS ®©™ (@opennViral) February 27, 2017
Athugasemdir