Heimild: Goal
Ousmane Dembele, einn allra efnilegasti leikmaður heims, segist hafa hitt Jurgen Klopp, knattspyrnustjóra Liverpool, áður en hann gekk í raðir Dortmund síðasta sumar. Hann var þó búinn að ákveða að ganga til liðs við Dortmund þegar hann hitti Klopp.
Hinn 19 ára gamli Dembele hefur slegið í gegn í Þýskalandi og verið einn besti leikmaður Dortmund á tímabilinu. Hann hefur skorað fimm mörk og lagt upp níu til viðbótar í 21 leik.
Hinn 19 ára gamli Dembele hefur slegið í gegn í Þýskalandi og verið einn besti leikmaður Dortmund á tímabilinu. Hann hefur skorað fimm mörk og lagt upp níu til viðbótar í 21 leik.
Hann var orðaður við mörg lið síðasta sumar, þar á meðal Liverpool, Leicester City, Manchester-liðin tvö og Arsenal, en hann ákvað þó að lokum að skrifa undir fimm ára samning við Dortmund.
„Ég hitti Klopp í París, en ég sagði við hann að ég væri ákveðinn í því að semja við Dortmund," sagði Dembele við FourFourTwo.
Dembele var eins og áður segir einnig orðaður við Englandsmeistara Leicester, en hann var heldur ekki nálægt því að fara þangað.
„Ég tók ákvörðunina löngu áður, þannig að það var ekki inn í myndinni að fara til Leicester," sagði Frakkinn efnilegi ennfremur.
Athugasemdir