Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 10. mars 2017 17:30
Magnús Már Einarsson
Óli Baldur hættir að spila með Grindavík - Verður styrktarþjálfari
Óli Baldur í leik með Grindavík í fyrra.
Óli Baldur í leik með Grindavík í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úlfar Hrafn Pálsson.
Úlfar Hrafn Pálsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óli Baldur Bjarnason hefur ákveðið að hætta að leika með Grindavík eftir að hafa leikið með meistaraflokki liðsins undanfarin átta ár.

Hinn 27 ára gamli Óli Baldur verður þó áfram í kringum lið Grindavíkur í Pepsi-deildinni í sumar því hann er orðinn styrktarþjálfari þess.

„Óli Baldur er kominn á fullt í einkaþjálfun og er búinn að vera að læra nuddarann. Hann ákvað sökum anna að hætta með okkur og kemur inn í þjálfarateymið sem styrktarþjálfari og nuddari," sagði Óli Stefán Flóventsson þjálfari Grindavíkur við Fótbolta.net í dag.

„Það er mikill missir af honum sem leikmanni enda mikill Grindvíkingur en að sama skapi frábær fengur að fá hann inn sem styrktarþjálfara en hann hefur getið af sér mjög gott orð á þeim vettvangi."

Óli Baldur er sóknar og kantmaður en hann skoraði 22 mörk í 170 deildar og bikarleikjum með Grindavík.

Í fyrra skoraði hann eitt mark í fimmtán leikjum þegar liðið fór upp úr Pepsi-deildinni.

Þá er ekki ljóst hversu mikið Úlfar Hrafn Pálsson verður með Grindavík í sumar eftir að hann sleit krossband í fyrra.

„Úlfar er að á fullu að jafna sig eftir slæm krossbandaslit en hann er á góðri leið og það kemur fljótlega í ljós hvernig tímabilið lítur út fyrir hann. Úlfar er leikmaður Grindavíkur og við búumst við honum sterkum til baka," sagði Óli Stefán.

Komnir/farnir:

Komnir:
Brynjar Ásgeir Guðmundsson frá FH
Milos Zeravica frá Zrinjski Mostar
Sam Hewson frá FH

Farnir:
Ásgeir Þór Ingólfsson til Hönefoss
Edu Cruz
Josiel Alves De Oliveira (Á förum)
Jósef Kristinn Jósefsson í Stjörnuna
Marko Valdimar Stefánsson til Hönefoss
Óli Baldur Bjarnason hættur
Athugasemdir
banner
banner