Ármann Smári Björnsson tilkynnti nýlega að skórnir væru farnir á hilluna. Ármann hefur verið lykilmaður í liði ÍA undanfarin ár.
Ármann er uppalinn hjá Sindra á Höfn í Hornafirði en auk ÍA hefur hann spilað fyrir Val og FH hér á landi.
Þá á hann sex A-landsleiki og lék með Brann og Hartlepool United í atvinnumennskunni.
Ármann setti saman úrvalslið ferilsins fyrir útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu síðasta laugardag og má heyra hann fara yfir það í spilaranum hér að ofan.
Liðið er svo hér að neðan.
Athugasemdir