Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 20. mars 2017 21:15
Stefnir Stefánsson
Hazard frá í tvær vikur
Eden Hazard missir af landsleikjum Belgíu
Eden Hazard missir af landsleikjum Belgíu
Mynd: Getty Images
Eden Hazard, miðjumaður Chelsea, gæti misst af leik Chelsea gegn Crystal Palace þann 1. apríl næstkomandi eftir að Roberto Martinez tilkynnti að miðjumaðurinn yrði ekki með Belgíu í tveimur leikjum með Belgíu núna í landsleikjahléinu.

Hazard kom ekki við sögu þegar Chelsea sigraði Stoke 2-1 á Bet365 vellinum á laugardaginn síðasta eftir að hann meiddist á æfingu degi fyrir leik.

Ljóst er að hann mun missa af leik Belga gegn Grikklandi á laugardaginn sem og vináttuleiknum gegn rússum á þriðjudaginn. En Roberto Martinez sagði að læknalið landsliðsins muni sjá um að meðhöndla hann eins og þeir geta áður en að þeir senda hann til læknateymis Chelsea.
Athugasemdir
banner
banner
banner