N'Golo Kante, miðjumaður Chelsea, segist vera ánægður með tímabilið hingað til.
Chelsea er með tíu stiga forystu á toppi deildarinnar og hefur franski miðjumaðurinn staðið sig svo vel á tímabilinu að brandarar eru byrjaðir að ganga um á samfélagsmiðlum um raunverulegt ágæti hans.

„Ég er ánægður með öll hrósin sem ég fæ en ég reyni að láta það ekki hafa áhrif á mig, það eina sem er mikilvægt er að einbeita sér að því að klára tímabilið af krafti," sagði Kante.
„Liðsfélagar mínir hjá Chelsea hafa sagt mér frá Kante-staðreyndunum sem ganga um netið. Það er bara smá grín, ég get augljóslega ekki dekkað 30% af yfirborði jarðar."
Kante segist vera ánægður með ákvörðun sína að yfirgefa Leicester til að ganga til liðs við Chelsea, en hann vann deildina í fyrra með Leicester og er á góðri leið með að vinna hana annað árið í röð með nýju félagi.
Athugasemdir