Arnór Smári Friðriksson er búinn að skrifa undir hjá 2.deildar liðinu Víði úr Garði.
Arnór Smári kemur frá Keflavík og lék um 20 leiki á láni hjá Reyni Sandgerði síðasta sumar, þar sem hann var valinn bæði efnilegasti leikmaður félagsins á tímabilinu og sá besti.
Arnór Smári kemur frá Keflavík og lék um 20 leiki á láni hjá Reyni Sandgerði síðasta sumar, þar sem hann var valinn bæði efnilegasti leikmaður félagsins á tímabilinu og sá besti.
Arnór hefur komið við sögu í einum Pepsi-deildarleik með Keflavík en hann er fæddur 1996.
Arnór verður góður liðsstyrkur fyrir Víði sem hefur byrjað undirbúningstímabilið ansi vel og er með fullt hús stiga eftir þrjár fyrstu umferðir Lengjubikarsins.
Athugasemdir